Styð!

Styð sjálfstæði Palestínu og vona að það fari í gegnum þingið mótathvæðalaust.
mbl.is Landamæraeftirlit við Hafnarfjörð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðjón Sigþór Jensson

Stið?

Hvað áttu við? Ef þú átt við „Styð“ þá eru að eg tel flestir skynsamir Íslendingar sem vilja það enda vorum við fyrsta þjóðin sem viðurkenndi sjálfstæði ísraels á sínum tíma.

Kv.

Guðjón Sigþór Jensson, 29.11.2011 kl. 15:00

2 identicon

Sæll.

Þessi málflutningur konunnar er afar furðulegur. Þingkonan skautar alveg framhjá ýmsu sem skiptir máli, nema hún viti ekki betur? Það er algengt hjá þingmönnum Sf. Það er heldur ekki hægt að kenna bara Ísraelum um allt, sjaldan veldur einn er tveir deila. Nú ætla ég ekki að gera lítið úr þjáningum Palestínumanna en þeim hefði getað lokið fyrir löngu síðan ef þeir hefðu sjálfir kosið það.

Ég held að allir styðji sjálfstætt ríki Palestínumanna en málið er bara ekki alveg svona einfalt. Það er um mjög margt að semja: Hvar eiga landamærin að liggja? Hvernig á samgöngum á milli Vesturbakkans og Gaza að vera háttað? Hvað með flóttamenn? Hvað með araba sem búa í Ísrael?

Fyrst þurfa þó Ísraelar einhvern til að semja við. Við Hamas er ekki hægt að semja enda er það þeirra stefna að þurrka út Ísrael. Er hægt að semja við Fatah? Það hefur ekki verið hægt hingað til. Abbas fór nýlega í fýlu og aflýsti samningaviðræðum vegna þess að Ísraelar leyfðu byggingu landnemabyggða í A-Jerúsalem en það hverfi er að meirihluta byggt gyðingum. Gyðingar hafa alltaf verið fjömennir í Palestínu, alltaf. Gyðingar hafa verið meirihluti íbúa Jerúsalem frá 1867. Af hverju ættu þeir þá ekki að fá að byggja íbúðir í Jerúsalem, sérstaklega í því hverfi þar sem þeir eru fjölmennir? Abbas er einfaldlega ófær um að semja frið og leiða þjóð sína til sjálfstæðis. Ástæðurnar fyrir því eru nokkrar en verða ekki raktar hér.

Menn gleyma því alltaf,  viljandi eða óviljandi, að Ísraelar fóru að eigin frumkvæði frá Gaza og leyfðu Palestínumönnum að ráða sínum málum þar. Hvernig hefur það nú tekist til? Hvernig hefur Hamas staðið sig þar? Hvað gerði Hamas við Fatah liða þar? Eru þeir að fjárfesta eða gera eitthvað til að undirbúa sjálfstætt ríki Palestínumanna? Sjálfstætt ríki þarf menntað fólk og verksmiðjur, það þarf að hafa tekjur og geta staðið án erlendrar aðstoðar. Á hverju ætlar þetta ríki að lifa? Í bili halda Bandaríkjamenn og aðrar þjóðir lífinu í Palestínumönnum með peningagjöfum. Hvernig ætti Abbas að geta borgað laun ef hann fengi ekki fé gefins erlendis frá? Hver borgar utanlandsferðir hans? Hver kostar lögreglu Palestínumanna og hver þjálfar hana?

Á hverju ætlar þetta sjálfstæði ríki þeirra að lifa? Á það alltaf að fá peninga gefins? Hvers vegna kýs Hamas að eyða fé í vopnabúnað í stað þess að fjárfesta t.d. í menntun þegna sinna? Svarið er að Hamas eru hryðjuverkamenn sem geta ekki stjórnað land og þess vegna vill enginn ræða við þá. Friðarviðræður hafa verið í gangi milli Hamas og Fatah um nokkra stund og ganga þær ekki vel.  Því miður fyrir Palestínumenn eru þeir klofnir og kemur sá klofningur niður á þeim. 

Amal nefnir heldur ekki að Abbas borgar fjölskyldum sjálfsmorðssprengjumanna laun. Hvað er það annað en að ýta undir sjálfsmorðsárásir? Amal nefnir heldur ekki að Ísraelar hafa látið mikinn fjölda palestínskra glæpamanna lausa í áranna rás sem good will gesture en ekkert fengið í staðinn. Hvernær ætla Palestínumenn að sýna lit á móti?

Hvers vegna halda menn að Hamas hafi ekki staðið þétt við hlið Abbasar þegar hann ákvað að leita viðurkenningar SÞ á sjálfstæðu ríki Palestínumanna? Af hverju spurði enginn fjölmiðill eða þingmaður þeirrar spurningar? Sér enginn neitt bogið við það? Sér enginn neitt bogið við að Abbas eyði tíma í þetta í stað þess að semja við Ísraela? SÞ geta ekki leyst hans vandamál og Abbas er raunar búinn að koma SÞ, sérstaklega UNESCO, í slæmt klandur með þessu brölti sínu.

Líking Amal um landamæragæslu við Hafnarfjörð er einnig stórgölluð, í Palestínu búa tvær þjóðir (jafnvel fleiri ef menn vilja telja öðru vísi en ég) en ekki hérlendis. Í Palestínu ganga sumir um með sprengjur á sér og sprengja sjálfa sig í loft upp til að drepa gyðinga. Reykvíkingar fara ekki upp í Hafnarfjörð til að drepa Hafnfirðinga eða öfugt.

Fjölmiðlar hér eru uppfullir af rangfærslum og nefna t.d. ekki að verulegur fjöldi eldflauga frá Gaza hefur lent í Ísrael undanfarna daga. Er það í lagi? Stærsti vandi Palestínumanna er stjórnmálamenn þeirra. Ísraelarnir hafa sýnt að hægt er að semja frið við þá. Það er ekki hægt að líta sífellt framhjá staðreyndum eins og t.d. þeim sem ég nefndi að ofan.

Nú er ég ekki að reyna að segja að Ísraelar séu eintómir englar en hérlendis er alltaf allri sökinni velt á þá í stað þess að skoða málin hlutlægt. Það er augljóslega ekki í lagi. Voru ekki nánast allir hér sem ruku upp til handa og fóta þegar Mavi Marmara málið kom upp? Video af þeim atburðum sýndi glögglega hvað gerðist en það var auðvitað ekki rætt. Hvers vegna?

Helgi (IP-tala skráð) 29.11.2011 kl. 22:50

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sjaldan veldu einn þegar tveir deila! Um leið þá á ekki ein þjóð að geta kúgað aðra!

Sigurður Haraldsson, 30.11.2011 kl. 08:27

4 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll Guðjón það vantaði svolítið upp á réttritun hjá mér með að skrifa stið í stað styð.

Sigurður Haraldsson, 30.11.2011 kl. 08:30

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband