Nei nei nei og aftur nei!

VIÐ HÖFUM EKKERT MEÐ FLEIRI BANKA AÐ GERA! ÞAÐ SEM VIÐ ÞURFUM ER AÐ AÐLAGA BANKAKERFIÐ AÐ ÞÖRFUM ALMENNINGS FYRIR ALMENNING! Fækkum í bankakerfinu og stokkum upp hættum að borga þessi ofurlaun fyrir það að geyma peninga það skapar ekki arð og það verða menn að fara að skilja í eitt skipti fyrir öll!
 
Nýjasta vatnsgusan kom í Séð og heyrt að forstjóri Auður Kapítal hafi keypt bíl fyrir tuttugu milljónir ef það er ekki hræsni og svívirða þegar allt er eins og það er hjá okkur í dag hvað er þá hræsni?

mbl.is Hugmyndir um „Besta bankann“ til skoðunar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Jú jú jú og aftur jú.

Það þarf Kardimommubæjarbanka með Múmínálfadeild - svona til þess að borgarstjóratrúðurinn geti átt í bankaviðskiptum -

vertu stilltur Sigurður - það er örugglega ekki verið að tala um venjulegann banka - bara einkabanka trúðins.

Ólafur Ingi Hrólfsson, 18.8.2010 kl. 10:58

2 Smámynd: Guðmundur Ásgeirsson

Reyndar yrði þetta "einkabanki" borgarsjóðs, en hann yrði ekki rekinn í hagnaðarskyni og markmiðið er skýrt: að lækka vaxtakostnað borgarinnar til þess að koma í veg fyrir þjónustuskerðingu eða hækkanir á gjöldum sem lögð eru á borgarbúa. Í rauninni gengur hugmyndin út á að fara framhjá þeim forréttindum sem fjármálastofnanir njóta í efnahagslífinu, og verði þetta að veruleika myndi vaxtamunurinn sem næst fram renna til borgarbúa í stað þess að mynda hagnað fyrir gömlu/nýju svindlbankana. Þannig verði þeir "teknir á eigin bragði" í þágu almennings frekar en einkaaðila. Ég hvet ykkur til að skoða málið í kjölinn, því hugmyndin er sett fram af heilum hug og í fúlustu alvöru. (NB hugmyndin kemur ekki frá Besta Flokknum!)

Guðmundur Ásgeirsson, 18.8.2010 kl. 13:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband