Ekki svo að ég sé nokkuð betri!

En þarna á að standa kindin bar hrút og gimbur en ekki hrúti og gimbur rétt skal vera rétt!
mbl.is Hitti hrút í Eyrarbakkamýrinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Það var eins gott að hún var ekki send í sláturhús.  Það þarf greinilega að ómskoða kindur áður en þær eru sendar í sláturhús, fyrst þær eru teknar upp á þessum andskota.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2011 kl. 17:06

2 Smámynd: Bergljót Gunnarsdóttir

Eru það ekki aðallega hrútlömb sem eru send til slátrunar á haustin?

Annars minnir þetta mig á, þegar ég fór í Hafravatnsrétt, en þeir voru svo góðir hér á árum áður, að leyfa forvinum Reykvíkingum, misjafnlega vel að sér um húsdýr að koma og fylgjast með.

Þarna var kona nokkur, sem talaði mjöghátt, alveg rosalega fín með grænan hatt, og greinilega dálítið fyrir að láta bera á sér.

Hún prílaði upp á réttarvegginn og sagði háum rómi við unglingspilt sem var að draga í dilka. Réttu mér nú þessa stóru þarna, mig langar svo að klappa þessu fallega júgri.

Strákurinn horfði á hana smástund og sagði síðan "mjög kurteysislega", veistu að þetta er í fyrsta sinn sem einhver sýnir áhuga á að klappa hrútspungunum og kalla þá júgur, flestir éta þá bara.

Ég hef sjaldan séð manneskju jafn fljóta að forða sér, eldrauð í framan.

Bergljót Gunnarsdóttir, 1.11.2011 kl. 17:35

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæl Ásthildur þetta er ekki óþekkt í búskapnum að svona gerist þannig að ómskoðun myndi hjálpa en er samt ekki alveg örugg.

Sæl Bergljót þessi var góður En ps. ég gat ekki sýnt þingheimi það sem hann átti skilið í dag því að hann var ekki á staðnum nema ör fáir þingmenn og tveir ráðherrar það voru Ögmundur og Jón Bjarna sem báðir eru enn að reyna stimpast á móti óréttlætinu að mínu mati.

Sigurður Haraldsson, 1.11.2011 kl. 17:46

4 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Ein rétt slapp við slálturhúsið því hún bar áður en hún var látin fara. 

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 1.11.2011 kl. 17:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband