Ekki getur þetta verið eðlilegt!

Enn eitt gosið þetta getur ekki verið eðlilegt að það gjósi hér og hvar um heiminn stórgosum á svona stuttum tíma, því tel ég það vera full víst að hér fari að gjósa innan skamms eins og ég hef spáð fyrir um í talsverðan tíma. En eins og allir vita þá er ekki hægt að segja til um hvenær það byrjar nákvæmlega þó svo að tilfinning mín hafi sagt mér að það myndi gerast nú í haust!

mbl.is Eldgos í Ekvador
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það gýs reglulega á Íslandi svo það að segja " ...full víst að hér fari að gjósa innan skamms eins og ég hef spáð fyrir um í talsverðan tíma" eru nú ekki miklir spádómar.

Er ekki að reyna að gera lítið úr þér neitt en þetta er staðreynd. :D

kv. 

Dagur Torfason (IP-tala skráð) 5.12.2010 kl. 03:21

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll Dagur hamfaragos sem þú hefur ekki upplifað og ekki heldur afi þinn né amma hvað þá heldur langafi eða langamma eða foreldrar þeirra, þannig gos sé ég í mínum sýnum!

Sigurður Haraldsson, 5.12.2010 kl. 09:59

3 Smámynd: Ingibjörg Axelma Axelsdóttir

Það eru eldgos í heiminum, á hverjum degi.

Alltaf er að byrja nýtt eldgos, og bersýnilega ekki alltaf á sama stað. Þetta er allt eðlilegt.

Ingibjörg Axelma Axelsdóttir, 5.12.2010 kl. 16:19

4 identicon

Látum hamfaragosið hefjast, gæti orðið spennandi

Dagur Torfason (IP-tala skráð) 5.12.2010 kl. 16:46

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Gaman að sjá ykkur á síðunni Ingibjörg og Dagur

Sigurður Haraldsson, 11.12.2010 kl. 23:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband