Flottur.

Ómar Ragnarsson er besti kraftur sem við höfum gegn náttúruspillingu en því miður þá hafa mafíulosanir ekki hlustað á hann frekar en aðra einstaklinga! Ómar á ekkert skilið nema gott og þetta framtak er frábærtSmile

mbl.is Ómar Ragnarsson fær milljónir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Kappinn á að verða forseti íslands... hann hefur alltaf verið einn af fólkinu.. eðalgaur

doctore (IP-tala skráð) 17.7.2010 kl. 13:17

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Samála ef við þurfum endilega að hafa forseta þá myndi hann sóma sig flott í því

Sigurður Haraldsson, 17.7.2010 kl. 13:19

3 identicon

hann hefur unnið margt gott í umhverfisvernd en öllu má nú ofgera líka þykir mér.

Í kárahnjúkamálinu má t.d. benda á að fáir ef einhverjir vegir voru þangað uppeftir og það var ekki á færi allra að komast á svæðið.

Örfáar hræður fóru þarna uppeftir en í nafni umhverfisverndar varð allt vitlaust.

Gjörsamlega gleymist að taka tillit til þess að með tilkomu virkjanna verða lagðir góðir og færir vegir uppá hálendi og margfallt fleira fólki í leiðinni gert kleift að komast uppá hálendi til að njóta okkar undurfögru náttúru.

Vissulega þarf samt að gæta að umhverfinu og að passa að ofgera ekki virkjunum heldur.

Ómar er hress og skemmtilegur í því sem hann gerir þó mér þyki hann stundum vera of mikill umhverfissinni og gleyma að hugsa um gullnameðalveginn en það er einkennandi fyrir baráttu fólk að berjast fyrir sínu málefni alla leið og óvisst að þeir sem aðhyllast meðalveginn hefðu nægjanlega ástríðu til að standa í umhverfisvernd.

Þessvegna má að vissu leiti segja að Ómar og annað baráttu fólk sé nauðsynlegt til að viðhalda velferð lands og þjóðar.

Til hamingju með afmælið Ómar.

Arnar Geir Kárason (IP-tala skráð) 17.7.2010 kl. 13:21

4 Smámynd: Villi Asgeirsson

Það þarf ekki að henda jólapakkanum þó hann hafi ekki verið opnaður á aðfanfadagskvöld. Þó fáir vegir hafi legið norður fyrir Vatnajökul og fáir séð þær náttúrugersemar sem þar voru, þýðir það ekki að þær hafi verið verðlausar. Hugmyndir voru um að virkja Gullfoss fyrir 100 árum. Sömu rök hefðu fórnað honum, því svo fáir höfðu séð hann þá á þeim tíma.

Til hamingju, Ómar! Maður berst ekki við öfgamenn með jafnaðargeði.

Villi Asgeirsson, 19.7.2010 kl. 07:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband