Stjórnvöld hljóta að gera eitthvað.

Það hlýtur að vara að stjórnvöld ætli að gera eitthvað gegn þessum uppboðum annað en að freta og fresta aftur og aftur þar til allt er komið í þrot! Einnig ætti bankamafían að endurskoða stefnu sína nú þegar annars fara þeir í þrot líka!

mbl.is Fjöldi heimila á uppboð
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Víst eru þeir til sem telja einboðið að banna skuli að fólk sé borið út úr íbúðum sínum. Þegar þeir fá þessari sjálfsögðu kröfu sinni fullnægt ætla ég sko að kaupa mér íbúð, á láni, og borga bara fyrstu afborgunina og sitja síðan í íbúð "minni" til dauðadags sæl og glöð yfir því að "helvítis bankar og AGS og kröfuhafar og fjármagnseigendur" - þetta sem í dag telst, í augum fólks á miðaldastigi, til norna - megi ekki bera mig út.

Ó hve samfélagið verður GOTT, hve efnahagslífið verður heilbrigt og langt frá hverskyns hruni þegar þessari mannúðlegu kröfu verður fullnægt: að ekki megi bera fólk út úr íbúðum sem það er einu sinni komið með lyklavöld að og búið að borga eitthvað í ...

Ó hve þessar nornir - helvítis bankarnir og AGS og kröfueigendur og fjármagnseigendur - eru vondar, þær eru sko andskotann ekkert skárri en nornirnar fyrr á öldum; ó nei, hér er sko allt nornunum að kenna, alveg eins og var, hér sem annarstaðar, á miðöldum.

En ... fyrst fólk upp til hópa er enn á miðaldastigi, af hverju má þá ekki brenna nornir núna eins og mátti þá? Ég bara spyr.  

asdis o. (IP-tala skráð) 24.9.2010 kl. 13:34

2 identicon

Er merkikertið Ásdís O. að ofanverðu ekki fullkomlega að misskilja samhengi hlutanna? Og heldur sig sko aldeilis hafa skilning. Hvað er það sem þú skilur ekki?  Hefur þú ekki fylgst með því hvaða glæpi bankar og fyrirtæki í landinu hafa framið gegn lánþegum landsins. Með fullkomnum stuðningi svívirðilegra stjórnvalda sem vinna ekki fyrir fólkið, heldur banka og fjármálafyrirtæki og gróðapunga. Úr því þú veist það ekki rændu þeir bankana að innanverðu og felldu gengið viljandi með stöðutöku gegn krónunni. ÞESSVEGNA flugu skuldir fólksins upp. Og núna skal þeim refsað og hent út af heimilum sínum vegna glæpamanna.  

Ólafur (IP-tala skráð) 24.9.2010 kl. 14:04

3 identicon

Ég átti þarna við banka og fjármálafyrirtæki. 

Ólafur (IP-tala skráð) 24.9.2010 kl. 14:08

4 identicon

Með ólíkindum hvað mikið af Íslendingum eru gjörsamlega siðlausir og i raun ógeðslegt fólk,að nýtta sér uppboð á annar manna eignum löglegt ja en gjörsamlega siðlaus,maður hugsar til þess þegar þeir i Evrópu 1940-1945 gátu nytt sér og græt á þrælahaldi gyðinga keift ódýrt fólk og gert hvað sem er við þau jafnvel keift húsin sem voru tekin af þeim þegar þau voru rekin úr landi eða send i vinnu/dauðabúðir.meira að segja gettó-inn 1940-1941 i pólandi þegar þeir vissu að gyðingar voru með falið gull og skartgrip á sér/inní sér þá nýtti svo kallaðir business menn sér það og létu þá fá smá brauðmola fyrir mikið gull/skratgripi því eins og einn pólskur business maður sagði i viðtali að þetta fólk var að drepast ur hungri og það sagði sig sjálft að það gat ekki nærst á demöntum eða gulli og var tilbuið að gera allt til að fá mat.

fólk herna á götuni og eitthverjir ógeðslegir aðilar nyta ser þá stöðu eins og það se ekki nó af öðrum íbúðum til sölu sem eru ekki teknar með þjófnaði.eg þekki mann einn sem stendur í íbúðarkaupum núna en honum dettur ekki i hug að kaupa íbúðir sem er verið að stela og reka fólk ut ur (selja á uppboði) þó svo hann geti grætt á þvi

ef Islendingar væru ekki svona ógeðslega miklir siðlausir þjófar og eigingjörn gráðug svín þá væri ekket af þessu fólki að fara á göturnar...

eg þakka fyrir að eiga ekkert á þessu landi og mitt mottó er að eingast aldrei neit hér á landi og ef eg þarf að eingast enhvað að vera með það skráð á eitthvað eingarhalds félag eða álika sem er ekki hægt að taka eg treysti ekki Islenska Ríkinu og islenskum almenning lengu..

Bjóst aldrei við að hluti af minni þjóð væri svona mikil viðbjóður

jon fannar (IP-tala skráð) 24.9.2010 kl. 15:37

5 Smámynd: Sigurður Haraldsson

asdis fólk vill borga lánið en ekki ránið sem fellst í því að þurfa að borga mörgum sinnum upphæðina sem tekin var að láni til baka þar er skekkjan!

Ólafur þetta er hárrétt hjá þér mafía og ekkert annað!

jon já það er ekki hægt að eiga nokkurn skapaðan hlut hér á fróni núna skatturinn, verðlagið og bankinn á eftir þér hvar sem þú ferð!

Sigurður Haraldsson, 24.9.2010 kl. 15:44

6 identicon

Jón Fannar, að mér skilst séu það mest megnis fyrirtækis sem eru að kaupa hús á nauðungaruppboði.

Sel það ekki dýrara en ég keypti það

Snjokaggl (IP-tala skráð) 24.9.2010 kl. 17:08

7 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Glæpahyski og ekkert annað!

Sigurður Haraldsson, 25.9.2010 kl. 02:15

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband