Þetta viljum við ekki!

Við í hinum Vestræna heimi viljum ekki sjá svona kjaftæði!
mbl.is 14 ára handtekin fyrir hórdóm
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Meyjarhaft getur auðveldlega rofnað við líkamsrækt, sérstaklega fimleika og ballett, og það er jafnvel hægt að missa það við að detta illilega eða á glannalegum hjólreiðum. Það er fullt af blásaklausum litlum fimleikastúlkum sem hafa engu að síður rofið meyjarhaft. Illa komið fyrir þessu landi. Læknar sem virðast ekki kunna líffræði og þekkja mannslíkaman taka skipunum frá meintum "andlegum leiðtogum", kallaðir "Islamskir fræðimenn" sem standa enn verr í andlegum málum en lækna fíflin í þekkingu sinni á mannslíkamanum, og boða grimmd, mannréttindabrot og dehumanization í nafni Guðs, sem verður að teljast alvarlegra guðlast en þau fjölmörgu brot sem þeir kalla "guðlast" í fáfræði og lífláta menn fyrir...eins og rithöfundurinn Salman Rushdie, teiknimyndateiknarar og fleiri sem hafa þurft að lifa í felum hafa þurft að reyna. Oft hefur hugtakið "blindur leiðir blindan" átt verr en þegar það er notað um þessa ríkisstyrktu skottulækna sem láta leiðast af stjórnmálamönnum sem eru algjörlega undir hælnum á "Islömskum fræðimönnum".

En reyndu að segja það þeim fjölmörgu fíflum víða um heim sem berjast fyrir því að koma á sharia dómstól sem valkosti í dómsmálum í nafni svokallaðrar "fjölmenningar", eins og þegar hefur verið gert hér og þar á Vesturlöndum. Verk slíkra manna eru ekki til marks um umburðarlyndi og víðsýni, heldur skort á fyrirhyggju og heimsku sem hefur enn alvarlegri afleiðingar en hrein illska og eyðileggur líf saklauss fólks. En það er helsti galli skásta stjórnarforms sem enn hefur verið fundið upp, lýðræðisins, að slíkir heimskingjar kjósa og komast jafnvel til metorða með því að ganga í augun á nógu mörgum hálfvitum.

X (IP-tala skráð) 6.4.2011 kl. 02:30

2 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Flott innlit X.

Sigurður Haraldsson, 6.4.2011 kl. 07:24

3 Smámynd: corvus corax

Það er fyndið þegar öfgamúslimar brjálast yfir því að prestur í USA eða annars staðar skuli brenna kóraninn og nota það sem afsökun til að drepa, eyðileggja og takið eftir: brenna fána annarra þjóða, brenna dúkkur í líki erlendra þjóðhöfðingja, brenna trúartákn annarra trúarbragða, o.s.frv. Þetta er allt í lagi af því að þessir öfgadrullusokkar gera þetta, en það má ekki anda á þeirra drasl eins og kóraninn eða önnur trúartákna þeirra. Þá er réttur allur þeirra megin. Tröll hafi þetta hyski og hryllingsverk þeirra.

corvus corax, 6.4.2011 kl. 09:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband