Sorglegt!

Kæru landsmenn það er sorglegt að í þreingingum okkar skuli þetta hús nú vera risið það er skammarlegt og gefur almenningi ekki góðar tilfinningar inn í farmtíðina að þetta skuli hafa verið sett á forgang umfram allt annað og hemilinn ásamt fjölda sem sveltur vegna aðgerðarleysis stjórnvalda!

mbl.is Mótmæla við Hörpu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þeir sem standa í mótmælastöðu utna við Hörpuna, með spjöld og tunnur, eiga svo sannarlega hrós skilið fyrir að minna á misréttið á Íslandi. Ég bý á landsbyggðinni og get því miður ekki verið í hópi mótmælenda í kvöld, en hugur minn er hjá því góða fólki. Harpan er dæmi um GEÐVEIKI!! Hver fermeter í þessu húsi kostar amk. EINA MILLJÓN! Hvað hefði verið hægt að gera fyrir 28 miljarða. Endurnýja tæki í sjúkrahúsum? Byggja mannsæmandi ódýrar íbúðir fyrir eldra fólk? Bæta starfsþjálfun öryrkja? Bæta vegakerfið? Fjölmargt annað sem of langt er að telja..........

Ólafur (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 19:58

Ólafur (IP-tala skráð) 13.5.2011 kl. 20:47

2 Smámynd: Guðmundur Pétursson

Sori þjóffélagsins er þarna mættur í hlutverki gesta og situr á sínum spilltu rassgötum með helgislepjusvip. Frekar ógeðslegt og skemmir þessa opnun. Þarna eru dæmdir þjófar, spilltir þingmenn og embættismenn, útrásarpakk sem átti stóran þátt í að setja þjóðina á hausin o.s.frv. Oj bara.

Listamennirnir eru hinsvegar góðir og ekkert út á þá að setja.

Guðmundur Pétursson, 13.5.2011 kl. 21:04

3 Smámynd: Sigurður Haraldsson

Sæll Ólafur já það er nefnilega málið þetta er tímaskekkja!

Sæll Guðmundur já viðbjóðurinn einn en eins og þú segir þá eru listamennirnir ekki þar á meðal.

Sigurður Haraldsson, 13.5.2011 kl. 21:22

4 Smámynd: Ólafur Ragnarsson

Sæll Sigurður. Mikið er ég sammála ykkur. Þér. nafna mínum og Guðmundi. Þetta var ísköld vatnsgusa í andlit þeirra sem minna mega sín. Og svo var "aðalmaðurinn" sýndur og eiginlega blessaður sem alalhvatamaður að ósköpunum. Þá skall nú norðanstórhríðin á í öllu sínu veldi framan í fg aðila Þessi djöf...... ósvífni við ökkur þessa sauðsvörtu ríður sko ekki við einteyming. Sértu ávallt kært kvaddur

Ólafur Ragnarsson, 13.5.2011 kl. 21:52

5 Smámynd: Ómar Ragnarsson

Ég vísa til bloggpistils míns um Hörpu. Hef sagt í mörg ár að húsið er margfalt dýrara en það þurfti að vera, en ef rétt er, sem Þröstur Ólafsson segir í blaðagrein, er "huggun" í því ef líta má svo á að 40% af peningunum, sem fóru í húsið, hafi komið úr vösum breskra og hollenskra sparifjáreigenda í Icesave, sem töpuðu því fé að mestu, því að það kom í gegnum Landsbankann.  Enda var Björgólfur meðal gesta í kvöld.

Ómar Ragnarsson, 14.5.2011 kl. 01:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband