Upprisa!

Það var pínlegt að hlusta á Geir H Haarde í fréttum útvarps í gær þar sem hann lofaði gjörðir sýnar og stjórnvalda til handa fjármagnseigendum og bankakerfi! Það er nákvæmlega það sem stendur uppúr eftir hrunið endurreistir bankar á kostnað almennra borgara og fyrirtækja og fjármagnseigendurnir sumir þjófar búnir að koma þýfinu í öruggt skjól á aflandseyjum allt í boði fjórflokksins sem varið hefur þetta kerfi og ör fáa fjármagnseigendur og um leið yfirfært skuldir banka og stofnana ríkisins á almenning. Eignarupptaka hefur farið fram hér í formi óréttmætra vaxta og verðtrygginga meðan laun hækka mjög lítið allavega hjá hinum almenna annað er uppi á teningnum þegar þeir ríkari hafa skammtað sér gríðarlegar hækkanir og ef ekki þá kjánaráð og stjórnvöld sjálf! Uppgjör á hruninu er ekkert bara sýndarmennska til að slá ryki í augu fólks sem búið er að fá nóg! Áróðurs maskína flokkræðis mallar dag og nótt með fjölmiðlum þar sem fólk lætur glepjast og kýs aftur og aftur sömu flokkana og sama kerfi elítu einkavinavæðingar bankadýrkunar og foringjaræðis! Allt setnir í annað og mun alvarlegra hrun þar sem ekki hefur verið tekið á málun af neinu viti og ofurlaun bankamafíunnar sem aldrei fyrr rekið á tvennum kennitölum gömlu og nýju bankana. Hvaðan skildi Guardian fá aðra eins fjarstæðu og fram kemur í blaðinu?

mbl.is „Ísland rís upp úr öskustó hrunsins“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband