Það þarf ekki hatur til!

Þessi moskubygging er ekki glóra nema að við myndum fá að byggja kirkjur í múslímalöndunum öllum með tölu!
mbl.is Líta upp til Breiviks
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það eru nú reyndar kirkjur í velflestum múslímalöndum ... þótt ég sjái nú reyndar ekki alveg samhengið í þessari röksemdafærslur!

Pétur (IP-tala skráð) 10.12.2013 kl. 22:37

2 identicon

Það eru til múslimar sem reyna að sameinast vestrænni menningu - en þá eru þeir heldur ekki múslimar lengur.

Vann með múslima um tíma. Í jólahlaðborðinu sem fyrirtækið bauð upp á, þá át hann eins og hestur af þessu "sænska jólahlaðborði". Að vísu var hann "alvöru flóttamaður" frá Íran og gaf lítið fyrir nýju ódæðisstjórnina þar.

Moska eða ekki moska skiptir ekki máli. Það er hugsunarháttur múslimana sem er vandamálið. Þeir vija ekki sameinast vestrænni menningu og haga sér samkvæm því.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 10.12.2013 kl. 23:06

3 identicon

Eru þessir múslimar ekki íslenskir ríkisborgarar, og er ekki trúfrelsi á Íslandi? Á kannski að banna þér að byggja af þvi að mörgum er ílla við þína hugmyndafræði? Eru múslimar ekki bundnir af íslenskum lögum?

Satt að segja eru múslimar sennilega með löghlýðnari hópum hér á þessum klaka. Það væri nú gaman að bera saman hópa í þeim efnum. Ég man ekki eftir einni einustu frétt um lögbrot af þeirra hálfu.

Benni (IP-tala skráð) 10.12.2013 kl. 23:53

4 identicon

Benni - Það er marg sannað og reynt, frá öðrum vestrænum samfélögum, að þegar múslima-minnihlutahópur hefur náð 4% af íbúafjölda, sem er um 12.800 einstaklingar á Íslandi, þá byrjar ofstækið.

Mulla í Svíþjóð sagði í fyrra, að það þarf eina mosku á hverja 1000 múslima. Sem sagt haugur af moskum!

Þú talar um lögbrot af múslima hálfu. Að kom inn í landið með falsað vegabréf eða þá ekkert er lögbrot. Að neita að taka í hendi væntanlegs atvinnurekanda, af því að hún er kona og neita að taka vinnuna, af því að múslimi vinnur ekki undir handleiðslu konu er siðleysi af grófustu gráðu í vestrænni menningu en fullkokmlega í anda islam.

Lestu Kóraninn og þá færð þú innsýn í hugsunarhátt múslima.

Er það ekki ofstæki og yfirgangur múslima, að stunda bænahald á götum og torgum borg allt að fimm sinnum á dag, og stöðva þar með alla starfssemi á svæðinu til að sýna vanvirðingu við heimamenn. Er það í lagi að ungir múslimar gangi um götur og skeri og höggvi saklausa borgar á hel - bara af því að þeir eru ekki múslimar.

Benni - fluttu í múslima-getto í Svíþjóð og hafðu samband eftir eitt ár.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 00:25

5 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Með trúfrelsi er nákvæmlega átt við það sem þeir og önnur trúarbrögð hafa. En þar með eru borgarar þessa lands ekki skyldugir að gefa þeim land,til að byggja sín bænahús á. Afskaplega er það illa ígrundað,þótt satt sé,að benda á fámennan hóp Múslima,sem löghlýðna umfram aðra. Þeir væru þá að grafa undan velvilja sem þeim er svo nauðsynlegur til að festa rætur,væru þeir sífellt í bófahasar.Þeir gera allstaðar kröfur til samfélaga,þar sem þeir setjast að og leyfa sér auk þess,að framfylgja sínum eigin lögum.-- En flestir þeirra ólöghlýðnu eru illa haldnir af neyslu vímuefna,sem flæða yfir þjóðina.Ég treysti mér ekki til að bera það á ráðamenn að þeir hafi sofið á verðinum í þeim efnum. Eftir þessa stuttu ath.semd,sé ég samt greinilega að það er ekki tekið á neinum brotum af alvöru,hvað þá að koma til hjálpar þeim sem eiga við vímuefnavanda að etja. Eða má ég segja nái þeir sjálfir að rétta sig við,þá eru iðulega lokaðar dyr v/vinnu og hjálp við endurmenntun.

Helga Kristjánsdóttir, 11.12.2013 kl. 00:39

6 identicon

Hef ég einhverntíma nefnt að ég vilji fá múslima eða einhverja aðra hópa inn í landið. Það er bara allt annað mál Ég er að tala um frelsi þeirra einstaklinga sem búa hérna á klakanum. En samkvæmt ykkar skilgreiningu á frelsi, þá er nú kanski ástæða til að hafa áhyggjur.

Jú ég las nú einhvern part af Kóraninum, og hef oft séð fólk kasta fram, ljótustu tilvitnunum sam þeð getur fundið. Þær eru nú ekkert fallegar sumar, en, eru þó eins og sonneta samanborið við Gamla Testamentið. Ég tala nú ekki um Talmúdann. Ef þið kynntur ykkur nú hann, þá fyrst fengjuð þið nú hroll.

Helga. Samkvæmt þinni röksemdafærslu, ættum við að varast alla löghlýðna borgara. Er nema von að maður klóri sér í hausnum.

Framfylgja þeir sínum eigin lögum og líka okkar lögum!? Ég myndi nú kalla það göfuglyndi.

Benni (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 08:27

7 identicon

Það eru kirkjur í flestum löndum undir hæl islam.. hvaða kirkjur vilt þú reisa Siggi, ríkiskirkju sumra íslendinga í Saudi.. eða hvað?

Annars eru múslímar aðeins á eftir, en þeir munu líka þróast frá trúnni eins og við gerðum á vesturlöndum.. trúarbrögðin eru dæmd til að deyja á ruslahaugum sögunnar, þar munu þau standa sem minnisvarði um það þegar menn voru vanþróaðir og menntunarlausir

DoctorE (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 11:31

8 identicon

Sæll.

Ég held að þessi Bjarni Randver ætti nú að kynna sér aðeins málin áður en hann eys úr skálum visku sinnar. Kannski telur hann norsku lögregluna vera að ljúga? Hvernig er staðan í Svíþjóð?

http://www.youtube.com/watch?v=wRnP-XzB_U0

Svo ætti Bjarni Randver kannski að prófa að lesa bókina "Íslamistar og naívistar".

Þeir sem til þekkja vita að trúin er einungis ein hlið íslam. Vandinn er einfaldlega sá að vestræn gildi og íslam fara ekki saman. Málfrelsi er ekki til í íslam eins og við þekkjum það á Vesturlöndum. Spyrjið bara dönsku skopmyndateiknarana. Hvað finnst Bjarna um það mál?

Í kóraninum kemur oft fram að Alla blekki og sé bestur í því eins og sjá má í súru 3:54. Í Bukhari 84:64-65 (hadith) segir Ali að það sé í lagi að ljúga til að blekkja óvininn. Gott dæmi um þetta er að Múhameð laug að óvinum sínum svo hann gæti drepið þá. Það kom fyrir Ka´b bin al-Ashraf og seinna Usayr ibn Zarim. Hvað finnst Bjarna um það?

Svo er það þetta hatur sem fylgir íslam - sem menn reyna þó stöðugt að þræta fyrir. Ég veit ekki um nein trúarrit þar sem fylgjendum er beinlínis sagt að beita ofbeldi gegn þeim sem gerast fráhverfir trúarbrögðunum eða aðhyllast þau ekki - það má þó sjá í súru 4:89, 9:123 og 8:39 svo nokkur dæmi séu tekin. Þessi vers skýra vel afstöðu múslima gagnvart gyðingum og Vesturlöndum. Í súru 5:51 er múslimum meinað að vingast við gyðinga og kristna.

Múslimar hafa reynt að slá ryki í augu fólks (eða ljúga beinlínis) með því að vitna í friðsöm vers en skilja ekki að hugtakið "naskh" gerir versin sem voru opinberuð Múhameð seinna rétthærri en þau sem voru opinberuð honum fyrr þar sem vers stangast á. Vel má vera að sumir múslimar skilji ekki þetta hugtak (sem má raunar finna í kóraninum og hadith).

Svo er það nú afstaða íslam til kvenna sem vinstri sinnar og femínistar vilja ekki vita af - einhverra hluta vegna. Gaman væri að heyra Bjarna útskýra þau í burtu :-)

Í súru 4:34 stendur sem svo að maður megi lemja konu sína ef hún neitar að hafa við hann samræði þar til hún samþykkir samræðið. Í hadith má líka sjá að Múhameð sló konu sína og lét sér fátt um finnast þegar aðrir beittu konur sínar ofbeldi. Í súru 4:3 er gefið grænt ljós á fjölkvæni (allt að 4 konur). Hvar eru nú femínistar - sá málefnalegi hópur?! Hvaða augum lítur Bjarni Randver fjölkvæni? Er það dæmi um ranghugmyndir um íslam? Hvernig er komið fram við trúarsystkini Bjarna í hinum múslimska heimi?

Hvað við getum gert til að sporna gegn útbreiðslu íslam er hins vegar flóknara. Fyrsta skrefið hlýtur þó að vera að fræða fólk og benda á tvískinnung múslima. Ég vil taka það skýrt fram að ég hef ekkert á móti múslimum - þeir eru ábyggilega margir hverjir mjög almennilegir. Vandinn er hins vegar alræðishyggjan íslam en þar eru múslimar sennilega helstu fórnarlömbin.

Vandinn við íslam er sá að þeir múslimar sem fremja alls kyns grimmdarverk eru að fara eftir því sem í kóraninum segir. Sjáum við í dag gyðinga fara til Þýskalands og sprengja sig og saklausa Þjóðverja í loft upp til að hefna fyrir helförina? Hvers konar trúarbrögð eru það sem fá foreldra til að finna til stolts þegar barn þeirra sprengir sig í loft upp og drepur aðra sem eru annarrar trúar?

Hvað segir í súru 9:5? Hvað segir hún? Hafið í huga naskh þegar þið lesið hana og túlkið. Hver er eina örugga leiðin fyrir múslima til að komast í Paradís? Sjá súru 4:74 og 9:89. Berum íslömsku útgáfuna um leiðina til paradísar saman við önnur trúarbrögð. Gaman væri að heyra mannvitsbrekkuna Bjarna leggja út af þessum versum í kóraninum. Finnst honum t.d. fjölkvæni í lagi?

Hvers fá múslimar sem deyja í jihad að njóta fyrstu nóttarinnar í paradís? Hvers konar viðhorfi lýsir það til kvenna?

Hvað segir hinn friðelskandi kóran í súru 4:89? Hvað með súru 47:4? En súra 9:123? Finnast samsvarandi ritningarstaði í t.d. biblíunni, ritum búddista eða annarra trúarbragða. Hvað finnst Bjarna um þetta?

Hvers vegna skyldu nú múslimar aðlagast vestrænum samfélögum illa? Fyrir því eru nokkrar ástæður og m.a. súra 5:51.

Ég gæti tiltekið fjölmörg önnur dæmi úr kóraninum. Hvernig hegða múslimar sér gagnvart konum? Hafið þið hugmynd um það? Sjá t.d. súru 2:229, 33:33 og 4:34 svo örfá dæmi séu tekin.

Það að ætla sér að bera íslam og önnur trúarbrögð saman er helber barnaskapur sem lýsir rosalegri vanþekkingu. Veit Bjarni eitthvað af því sem að ofan greinir?

Hvað finnst Bjarna um þennan lista? Er hann lygi, misskilingur eða eitthvað annað?

http://www.thereligionofpeace.com/index.html#Attacks

Helgi (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 15:24

9 identicon

Helgi - frábært.

En því miður er það þannig, að á meðan góða fólkið gerir ekkert, þá vinna illu öflin.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 19:16

10 identicon

Biblían fyrirskipar samskonar refsingar, drepa þá sem eru ekki réttrar trúar, nauðga börnum.... ein helsta meinsemd trúarbragða er að menn sjá ekki ógeðið í sinni trú en hneykslast mikið yfir nákvæmlega sama ógeði í öðrum trúarbrögðum... þetta er vegna þess að trúaðir eru faktíst þrælar..

DoctorE (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 19:33

11 identicon

DoctorE - Hvaða rugl er í þér gagnvart Bíblíunni? Ástundum við voðaverk, í nafni Biblíunnar, í dag? Nei!

Ástunda múslimar voðaverk, í nafni Kóransinns, í dag? Já!

Ekki hræra saman 5000 árum af trúarboðskap og leggja það að líku í dag.

Lestu Kóraninn og styttu þér leið í gegnum tivísanir Helga í lið 8.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 20:30

12 identicon

Það breytir engu með það að það er samskonar hryllingur í báðum bókunum.. það að við förum ekki eftir þessu rugli í dag gerir biblíu ekki að betri bók, að auki er alveg rosalega mikið af hrylling sem enn er við líði vegna biblíu, börn eru barin til dauða, það er ekki farið með þau til læknis.. þjóðfélagshópar fá ekki full mannréttindi ofl ofl ofl.

Þú, V.Jóhannsson einfaldlega sannaðir það sem ég sagði í fyrra svari með að trúaðir sjá ekki hryllingin í eigin trú..

DoctorE (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 20:54

13 identicon

Einföld hugleiðing: Músliminn veit áður en hann flytur til vestræns lands, að hann aðlagast ekki samfélaginu.

Hvers vegna kemur hann þá? Af hverju flytur hann ekki til annars múslimst lands, þar sem ástandið er skárra en heimafyrir?

Við vitum að þessir svokölluðu "flóttamenn" frá múslimskum löndum eru engir flóttamenn. Að ferðast "á eigin vegum" í gegn um Íran, Tyrkland, Grikkland,Þýskaland, Svíþjó og til Íslands vegabréfslaus, stemmir ekki. Þetta er meðvituð og kostuð innrás múslima inn í vestræn ríki. Ekta flóttamaður kemst hvorki lönd né strönd án aðstoðar móttakandans

Palentísku konurnar sem fóru upp á Akranes, geta talist"alvöru flóttafólk" en þessir múslimsku flóttaMENN á Fit, staðhæfi ég, að eru engir flóttamenn.

Þetta ástand blasir svo berlega við á hinum norðurlöndunum og þá sérstaklega þessi svokölluðu "einsömlu múslimsku börn" sem eru til 84% drengir yfir 18 ára sen ljúga bæði um nöfn og uppruna. Spiltir stjórnmálamenn líta á þessa einstaklinga sem atkvæði í kosningum og dæla skattpeningum í þessa einstaklinga og í ofanálag skapa vinnu fyrir flokksfélaga við að sinna þessum einstaklingum. Hvers vegna koma þeir hingað til vestrænna landa? Jú, það er gott að komast á spenann í þróuðu lýðræðisríki og spilla fyrir í leiðinni. Fyrst kaos og síðan Islam.

Reiknað hefur verið út, að Svíþjóð verður múslim-stýrt land 2049 og sharialög í fullu gildi.

Innflytjendaráðuneitið gerir ráð fyrir að 100.000 sýrlendingar og aðrir múslimar fá dvalarleyfi 2014 og hópurinn stækkar og stækkar.

Þessar tölur hafa verið byrtar opinberlega og eru þá ekki "rasism" eða hvað?

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 11.12.2013 kl. 23:57

14 identicon

http://www.exponerat.info/stor-fin-gard-blir-nytt-boende-for-ensamkommande-i-borlange/

Þetta gæti verið framtíðinn í Íslandi, því íslendingar taka alla vitleysu upp eftir svíum.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.12.2013 kl. 00:04

15 identicon

http://www.friatider.se/grishuvud-utanfor-mosken

Þessa frétt þurfið þið að lesa og sérstaklega kommentinn þar sem þingmaðurinn og islamistinn Wabari kemur fram.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.12.2013 kl. 00:14

16 identicon

Ég vil taka það fram að ég er á móti "multiculturisma", en, ég vil að þeir sem búa á Íslandi búi við frelsi, sama hvaða bækur þeir aðhyllast. Þið ættuð nú samt að átta ykkur á, að það eru þeir sem skrifuðu Gamla Testamenntið og Talmúd, sem standa fyrir "multiculturisma" vitandi hvaða afleyðingar það hefur í för með sér. Það eru jú þeir sem hafa völdin. Þeir vita að eina mögulega ógnin af Islam er í gegnum "multiculturism". Þið eruð bara saklausir einfeldningar í þeim leik, enda fer ykkar tími í að þrátta um einhverja byggingu, sem einfaldlega verður byggð. Það eru engin lög sem standa í vegi þess, eða eruð þið að stinga upp á því að sniðganga lögin bara fyrir ykkar málstað. þið haldið áfram að höggva og höggva í vitlaust tré á meðan púkinn fitnar á fjósbitanum.

Benni (IP-tala skráð) 12.12.2013 kl. 04:44

17 identicon

@DoctorE:

Þú bara fullyrðir um Biblíuna. Komdu með conkret dæmi! Hvar segir biblían að nauðga eigi börnum? Vel má vera að kristnir einstaklingar hagi sér illa en þeir fá ekki fyrirmæli um það úr biblíunni. Öðru máli gegnir um múslima. Alltof margir átta sig ekki á þessu. Þú sýnir ótrúlega vanþekkingu þína með því að bera saman íslam og kristni. Kannast þú t.d. ekkert við íslamska banka? Hvaða munur er á þeim og öðrum bönkum? Segir sá munur þér ekki neitt? Nennir þú ekkert að kynna þér málin? Hvað með fjölkvæni? Er svona þægilegt að sitja í hægindastólnum sínum og hata bara og upphefja sjálfan sig um leið? Lestu bókina "Íslamistar og naívistar".

Vandinn er hins vegar sá þau grimmdarverk sem múslimar fremja eru vegna þess sem þeir lesa í kóraninum.  

@V.Jóhannesson: Hef séð þetta með Svíþjóð og 2049. Holland lendir í sama pakka fljótlega eftir það. Gott hjá þér að benda á þetta. Ætli við köllum Svía þá enn frændur okkar? Varðandi palestínsku konurnar sem fóru upp á Akranes átti auðvitað að velja kristna Palestínumenn til að hjálpa, ekki múslimska.

Í dag er stórhættulegt að vera ekki múslimi í múslimskum ríkjum eins og listinn sem ég er með í 8 sýnir glögglega.

@16: Frelsi er gífurlega mikilvægt en íslam er alræðishyggja.

Helgi (IP-tala skráð) 12.12.2013 kl. 05:58

18 identicon

Helgi, gott hjá þér að nefna islamísku bankana!

Sænskur bankastarfsmaður sagði, fyrir mörgum árum, í útvarpsviðtali: Við verðum að endurskoða þetta með vextina, því allir múslimar í Svíþjóð sem eru í viðskiptum versla við múslimska banka í London og þeir (múslimarnir) eru með peningana. Þeir hafa eins lítil bankaviðskipt í Svíþjóð og mögulegt er. Múslimar vilja ekki sameinast vestrænum gildum og þá hvarlar að svíum að fara eftir Islömskum gildum í staðin.

Verði þeim að góðu.

V.Jóhannsson (IP-tala skráð) 12.12.2013 kl. 12:24

19 identicon

Ef við mælum vestræn gildi við bankana, þá fáum við nú falleinkunn

Benni (IP-tala skráð) 13.12.2013 kl. 01:24

20 Smámynd: Helga Kristjánsdóttir

Hvað ég er innilega sammála,V.Jóhannssyni og Helga. Múslimar dreyfa sér að því er virðist skipulega um öll heimsins lönd og markmiðið er að ávinna sér þar réttindi og hefð. Benni! þeir sína stillingu meðan þeir eru fámennir innflytjendur,en eru samt þegar farnir að frekjast. Eftir það fara kröfur þeirra um að siðir þeirra verði innleiddir í öllum stofnunum og ekki aðeins það,um þá má hvorki skrifa né spauga í blöðum. Trúarbragðahlýðni Múslima er öllum lögum æðri,það höfum við sannreynt á Norðurlöndum og hér á landi eins og þeir V.Jóhannson og Helgi tiltaka. Barnabarn mitt bauð öllum bekknum sínum í grunnskóla í afmæli sitt,einn gat/vildi ekki koma (Múslimi),því þar voru stelpur,bara smá sýnishorn af væntanlegri kúgun kvenna,nái þeir að festa rætur hér.

Helga Kristjánsdóttir, 15.12.2013 kl. 01:32

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband